Réttum hlut námsmanna erlendis

október 16th, 2008

Íslenskir námsmenn erlendis hafa fengið að finna harkalega fyrir sveiflukenndu gengi krónunnar á undanförnum mánuðum en námslán þeirra eru greidd út í íslenskum krónum. Þann 1. júní ár hvert eru gefnar út tölur um grunnframfærslukostnað í hverju landi fyrir sig í mynt viðkomandi ríkis. Þessi tala er svo umreiknuð yfir í íslenskar krónur á gengi gjaldmiðilsins í lok skólaannar.

Til að framfleyta sér á hverri skólaönn hefur viðkomandi námsmaður í flestum tilfellum fengið bankalán sem miðast við þá grunnframfærslu sem upphaflega var gefin upp. Þegar kemur að greiðslu er ekki ólíklegt að gengi erlendra gjaldmiðla gagnvart íslensku krónunni hafi tekið verulegum breytingum og annaðhvort gert framfærslu viðkomandi námsmanns auðveldari eða erfiðari. Námsmenn geta því endað í skuld við sinn viðskiptabanka og námslánið dugir ekki fyrir skuldinni.

Meira...

Evrópa sérfræðinganna

september 28th, 2008

Þessi grein birtist i 24 stundum á föstudag: Margt athyglisvert kom fram í ferð Evrópunefndarinnar til Brussel sem farin var í vikunni en undirrituð var þar eina konan í ellefu manna hópi sem hitti nítján talsmenn ESB, þar af átján karlmenn. Umfjöllun fjölmiðla um ferðina hefur einkum snúist um eitt atriði sem var könnun nefndarinnar á því hvort hugsanlega væri hægt að taka upp evru og verða aðili að myntbandalagi ESB með tvíhliða samkomulagi án þess að ganga inn í Evrópusambandið. Þetta erindi var hins vegar eingöngu í formi könnunar enda hefur ríkisstjórnin ekki mótað sér þá stefnu að þessa leið eigi að reyna til þrautar og því er vart hægt að segja að nefndin hafi formlega farið með þetta erindi, fremur að þetta hafi verið kannað hjá embættismönnum og hvort einhver lagaleg rök mæltu gegn þessu.

Meira...

Er löggjafarvaldið horfið frá Alþingi?

september 15th, 2008

Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu í dag: Á því þingi sem lauk núna var lagður fram mikill fjöldi mála. Í fyrsta sinn var haldið framhaldsþing í september og þar var endahnútur bundinn á nokkur þingmál. Þegar afgreidd þingmál eru skoðuð, óháð efni þeirra, kemur hins vegar margt athyglisvert í ljós. Ríkisstjórnin lagði fram 145 þingmál, frumvörp og þingsályktunartillögur, og fyrir þetta septemberþing höfðu 120 þeirra verið samþykkt. Sex voru samþykkt til viðbótar á septemberþinginu auk þriggja nýrra mála. Á sama tíma lögðu „óbreyttir“ þingmenn fram samtals 152 mál og þar af voru tíu samþykkt. Tvö lagafrumvörp, bæði lögð fram af forseta þingsins, Sturlu Böðvarssyni, og átta þingsályktunartillögur.

Meira...

Ljósmæður lögsóttar

september 13th, 2008

Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu í dag: Ljósmæður fóru í sitt fyrsta verkfall frá upphafi nú í byrjun september og annað verkfall skall á um það bil viku seinna þegar ekkert hafði þokast í samningaátt. Fjármálaráðherra sagði á Alþingi að hann vonaðist til að ekki þyrfti að fara í hart í deilunni en hefur nú sýnt annað í verki með því að stefna Ljósmæðrafélaginu fyrir félagsdóm vegna fjöldauppsagna. Formaður Ljósmæðrafélagsins hefur á hinn bóginn sagt að ljósmæður hafi sagt upp á sama tíma vegna mikillar reiði sem braust út í kjölfar ummæla formanns samninganefndar ríkisins sem sagði nefndina ekki hafa skipt um skoðun á störfum ljósmæðra frá árinu 1962.

Meira...

Af sýnilegri löggæslu

ágúst 7th, 2008

Mjög sérstakur dagur í dag. Ætluðum að nýta einn af síðustu sumarleyfisdögum frumburðarins og fara í fjöruferð. Þá bar svo illa við að á Hringbrautinni, nærri gatnamótum hennar og Njarðargötu, var keyrt aftan á okkur. Ég hreinlega man ekki eftir því að hafa nokkru sinni lent í árekstri (eða ætti maður að segja bílatviki í ljósi nýrra málvenja?) og fékk áfall. Börnin kipptu sér lítið upp við atburðinn enda báðir ökumenn á tiltölulega lítilli ferð. Þar sem við förum út úr bílnum og ætluðum að útfylla tjónaskýrslu ásamt hinum ökumanninum ber svo ótrúlega heppilega við að sjálfur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu keyrir framhjá. Hann stoppar og bjargar málum eins og ekkert sé…

Meira...

Hitabylgja

ágúst 5th, 2008

Hér í Vesturbæ hefur verið sérlega gott veður að undanförnu og hlýtt eins og víðast hvar annars staðar á landinu. Hér hefur líka verið mikill hiti innandyra þar sem synirnir hafa skipst á að hafa hita. Nú er sá yngri kominn með rauð útbrot um allan líkamann eftir nokkurra daga hita og almennan lasleika. Lýsingin passar við svonefndan mislingabróður en eini gallinn er sá að hann hefur þegar fengið þann ágæta barnasjúkdóm. Nú er spurningin hvort hér sé um að ræða mislingasystur eða einhvern annan fjölskyldumeðlim — nema hann sé kannski með hina einu og sönnu mislinga? En ég man vart eftir öðru eins veikindasumri — ef við eignumst þriðja soninn tel ég koma sterklega til greina að nefna hann Lasarus Gunnarsson.

Meira...

Heildræn umræða um Evrópumál

ágúst 1st, 2008

Hér kemur síðari greinin:

Í fyrri grein okkar um Evrópumál og íslenskan efnahag tæptum við á nauðsyn þess að eiga heildræna umræðu um Evrópumál þar sem allt væri undir. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur allt frá stofnun lagt mikla áherslu á stefnumótun á sviði utanríkis- og alþjóðamála, þar á meðal Evrópumála. Að þessum málum er nú unnið þannig innan flokksins að sérstakur starfshópur fjallar um Evrópumál undir forystu fulltrúa okkur í Evrópunefnd þeirri sem nú starfar. Fyrirhugað er málþing um Evrópumál í haust enda leggjum við Vinstri–græn áherslu á það í starfi okkar að skoða allar hliðar þessara mála, kosti og galla, og hafna engum hlutum fyrirfram. Stefna flokksins hingað til hefur hins vegar verið skýr…

Meira...

Evrópuumræðan og efnahagsvandinn

ágúst 1st, 2008

Þessar greinar eftir mig og Steingrím birtust í liðinni viku í Morgunblaðinu:

Að undanförnu hefur mikil umræða verið í fjölmiðlum um tengsl Íslands við Evrópusambandið. Vangaveltur af ýmsu tagi um upptöku evru í stað íslensku krónunnar hafa verið afar fyrirferðarmiklar. Sumir orða það þannig að þungi Evrópuumræðunnar sé sífellt að aukast. Aðrir tengja aukna umræðu nú fyrst og fremst við tal um efnahagsvanda, heimatilbúna kreppu og þrengingar. Í hugum okkar undirritaðra er allt tal nú um inngöngu í Evrópusambandið eða upptöku evru sem lið í að leysa efnahagsvandann og þá hagstjórnarkreppu, sem við Íslendingar glímum nú við og er að stóru leyti heimatilbúin, flótti frá veruleikanum. Hér þarf fyrst og fremst að ná tökum á hagstjórn og endurheimta efnahagslegan stöðugleika.

Meira...

Þá er farið að rigna

júlí 13th, 2008

Það stóð ekki á því. Um leið og sumarfríið byrjaði hjá eldri syninum fór að rigna og þeir strákarnir veiktust báðir. Svona eiga sumarfrí að byrja, þá getur leiðin aðeins legið upp á við.

Þingflokkur Vg hefur ekki setið auðum höndum í sumar, við höfum m.a. verið að heimsækja heilbrigðisstofnanir og verið að undirbúa ýmis mál fyrir haustið og veturinn. Á næstunni verður hins vegar lítið um slíkt hjá mér heldur settur fókus á fjölskylduna. Maður sækir sumarstemmninguna þá bara eitthvert annað en í veðrið — get t.d. mælt með kvikmyndinni Mama mia sem er frábærlega skemmtileg og sumarleg!

Meira...

Nýjar leiðir og gömul gildi

júlí 11th, 2008

Eftirfarandi Álitsgrein birtist í 24 stundum í dag: Íslendingar skila um 80% af seldum flöskum og dósum til Endurvinnslunnar og má það kallast harla gott hlutfall. Alls eru þetta um 93 milljónir flaskna og dósa (sem segir okkur líka að Íslendingar drekka óheyrilega mikið af gosi og áfengi!). Fyrir þetta greiðir Endurvinnslan hf. um það bil 930 milljónir eða 10 krónur fyrir flösku. Vafalaust skiptir þessi hagræni hvati miklu því að fólk endurvinnur fremur það sem það fær greitt fyrir að endurvinna. Að auki ákveða þá margir að endurvinna annað í leiðinni; blöð, fernur, gler og fleira.

Meira...