Katrín er í stjórnmálum því henni finnst skipta máli að

— staldra við í umhverfismálum og taka nýja stefnu, byggða á sjálfbærri hugmyndafræði.

— nýta tækifærið við brottför hersins, segja sig úr NATÓ og vinna að friðsamlegum heimi með nýjum aðferðum.

— taka meiri tillit til barnanna í samfélaginu og annarra lífsgæða en þeirra sem mælast í krónum og aurum.

— menntun verði efld á öllum skólastigum og fé til menntunar verði skynsamlega varið.

— skattkerfið verði nýtt til að auka jöfnuð í samfélaginu þannig að þeir sem minnstar tekjur hafa borgi hlutfallslega lægri skatta en hinir sem mest bera úr býtum.

— stjórnvöld fylgi jafnréttislögum eftir, t.d. með eftirliti með því að vinnuveitendur mismuni ekki körlum og konum í launum.

— sækja fram í velferðarkerfinu og skapa betra heilbrigðiskerfi og almannatryggingakerfi.