Katrín Jakobsdóttir fæddist í frostköldum febrúarmánuði árið 1976, á heimastjórnardaginn raunar, þó að ekki hafi svipur hennar þann dag bent til þess að hún væri að hugsa um Hannes Hafstein. Hún ólst upp í Álfheimum í Reykjavík sem þá var ein fjölmennasta gatan í borginni. Katrín er yngsta barn og þykir bera þess ýmis merki. Hún var með endemum ófélagslynt barn og undi sér best við margháttað dútl og vangaveltur.
Snemma kom keppnisskapið í ljós, bæði við badmintonæfingar í TBR en einkum þó í spilum þar sem hún brást stundum illa við tapi og fnæsti þá svo að minnti á gufuvél.
Félagsveran Katrín kom í ljós þegar hún hóf nám í Menntaskólanum við Sund þar sem hún sinnti öllum félagsstörfum sem í boði voru og lauk ferlinum með því að vera kjörin ármaður Skólafélagsins, næst kvenna á eftir núverandi menntamálaráðherra.
Úr MS lá leiðin í Háskóla Íslands þar sem hún notaði eitt ár í að læra tungumál ástarinnar, frönsku, en skipti svo óvænt yfir í íslensku. Hún lauk meistaraprófi 2004 og fjallaði meistaraprófsritgerðin um eitt helsta hugðarefni Katrínar, íslenskar glæpasögur. En svo skemmtilega vildi til að íslenskir glæpasagnahöfundar fóru að kappkosta að leggja til rannsóknarefni um leið og Katrín hóf vinnu við BA-verkefni sitt sem einnig fjallaði um glæpasögur.
Í Háskólanum uppgötvaði Katrín líka fleiri hæfileika, fór að sýna töfrabrögð í Töfradúettinum töfrandi og er ennfremur einn af stofnendum áhugaleikhópsins Hörpunnar sem m.a. hefur sýnt Njálu á tíu mínútum, og fleiri meistaraverk.
Katrín gekk í Vinstrihreyfinguna-grænt framboð árið 2002 og var kjörin varaformaður flokksins 2003 en hafði áður verið kosningastjóri í Reykjavík fyrir kosningarnar vorið 2003.
Katrín hefur fengist við ýmis störf um ævina, þar á meðal bréfaburð, bankastörf, borgarfulltrúaembætti og barnapössun. Hún hefur líka átt heima á fjölmörgum stöðum undanfarin ár en er nú orðin stoltur íbúðareigandi.
Súkkulaði og súrmatur eru eftirlætisfæða Katrínar, íslenskt vatn er eftirlætisdrykkurinn. Hún varð snemma orðlögð fyrir einkennilegan áhuga á íslenskum fossum og er sögð geta romsað upp úr sér tíu hæstu fossunum enn þann dag í dag.
Katrín vann við kennslu og ritstjórnarstörf þar til hún var kjörin á þing í kosningum í maí 2007. Hún býr ásamt eiginmanni sínum Gunnari Sigvaldasyni í vesturbæ Reykjavíkur og saman eiga þau synina Jakob og Illuga.
