Börnum slátrað
Okkur berast nú á hverjum degi fréttir frá Gasaborg. Þar hafa Ísraelsmenn ráðist inn og drepa daglega óbreytta borgara, konur og börn. Þeir reyna að halda fjölmiðlamönnum sem mest frá svæðinu því eðlilega vilja þeir ekki að heimsbyggðin sjái grimmdarverkin. Þeir þverbrjóta alla alþjóðlega samninga sem snúast um að hlífa óbreyttum borgurum í stríði, skólar eru sprengdir upp, starfsmenn alþjóðlegra hjálparsamtaka eru drepnir. Óbreyttum borgurum, þ.á m. börnum, er smalað inn í hús sem eru svo sprengd í loft upp.
Þessi árás er réttlætt með því að Ísraelar verji hendur sínar gagnvart Palestínumönnum og er þá gjarnan vísað til hryðjuverka Hamas-samtakanna. En ef horft er t.d. á eldflaugaárásir kemur fram í skýrslu Human Rights Watch-samtakanna að árið 2007 skaut Ísrael 14.617 eldflaugum yfir á Gasasvæðið. Á sama tíma var 2.700 flaugum skotið inn í Ísrael. Þessar tölur sýna auðvitað að svæðið er púðurtunna. En hlutföllin sýna líka að réttlæting Ísraelsmanna stenst enga skoðun. Hér er um árásarstríð að ræða þar sem fórnarlömbin eru einkum óbreyttir borgarar.
Ísraelsher hefur lengi virkað sem tilraunastofa alþjóðlegra vopnaframleiðenda. Palestínumenn hafa orðið fórnarlömb nýjustu tækni og vísinda í vopnageiranum í því áralanga ofbeldi sem þarna hefur fengið að viðgangast og má nefna sem dæmi að eyðileggingarmáttur eldflauga þeirra er gríðarlegur. Helsta nýmæli Ísraelshers eru svokallaðar þrýstisprengjur sem nánast húðfletta fórnarlömbin. Ísraelsher hefur líka verið óhræddur við að beita vopnavélmennum sem skjóta á allt sem hreyfist, sama hvort það eru börn eða hermenn.
Árásin á Gasa jólin 2008 er skelfileg aðgerð sem ekki á að líðast. Núna hafa nærri 770 óbreyttir borgarar verið drepnir á tveimur vikum, þar af 257 börn. Á sama tíma hafa sjö ísraelskir hermenn fallið. Alþjóðasamfélagið getur ekki horft upp á að börnum sé slátrað og óbreyttir borgarar séu stráfelldir. Ef framferði Ísraelsmanna gefur ekki tilefni til að slíta stjórnmálasambandi við ríkið þá er það tilefni vandfundið.
