Hvenær er tímabært?

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa tekið undir þau sjónarmið að mikilvægt sé að ráðist verði í óháða rannsókn á bankahruninu þegar það sé tímabært. En hvenær er tímabært?

Mitt svar við því er einfalt. Það er tímabært að nú strax verði þingið látið skipa rannsóknanefnd færustu manna sem njóti aðstoðar erlendra sérfræðinga. Rannsóknarnefnd sem fari yfir spurningar á borð við það hvernig valið var í skilanefndir, hvernig verði tekið á því að stjórnir gömlu bankanna afskrifuðu lán starfsmanna, af hverju fólk sem bar ábyrgð á Icesave-reikningunum var ráðið í yfirmannsstöður í Nýja Landsbankanum, af hverju nýju bankastjórunum voru skömmtuð helmingi hærri laun en forsætisráðherra, af hverju gömlu bankarnir hafa enn ekki verið gerðir gjaldþrota og svo mætti lengi telja. Það er tímabært að þingið skipi slíka rannsóknarnefnd og að sérstakur saksóknari verði einnig skipaður eins og rætt hefur verið.

Slíka nefnd ætti að skipa strax vegna þess að því lengur sem óvissa og tortryggni ríkir um aðdraganda bankahrunsins, þeim mun erfiðara verður fyrir okkur að vinna okkur út úr þeim erfiðleikum sem það olli.  Nú skiptir máli að byggja upp traust og þá verður að setja þessi mál í gagnsæjan farveg þannig að þjóðin fái réttar upplýsingar, hægt verði að draga lærdóm af þessari reynslu og ekki verði anað út á gömul foröð þegar við endurmótum samfélagið.

6 Responses to “Hvenær er tímabært?”

  1. Elín Says:

    Þingið? Heldurðu að þingmenn hafi geymt sinn sparnað undir koddanum? Við gætum allt eins skipað Trölla og Trínu í rannsóknarnefndina.

  2. Gunnar Þór Gunnarsson Says:

    Er þá ekki ráð að koma með þingsályktunartillögu þess efnis? Mæli með því!
    Ég er viss um að slík tillaga væri samþykkt þvert á flokkslínur. Ég trúi því allavega ekki að öllum stjórnarliðunum líði vel með það sem er að gerast í forystunni hjá þeim.

  3. Katrín Says:

    Eins og sést ef greinin er lesin þá legg ég til að þingið skipi nefnd, ekki að nefndin verði skipuð þingmönnum. Ennfremur að nefndin fái til sín erlenda sérfræðinga með reynslu af slíkum rannsóknum. Það tel ég vera lýðræðislegri og gagnsærri leið en ef framkvæmdavaldið skipar slíka nefnd. Og ekki er hægt að fela eftirlitsaðilum eins og fjármálaeftirlitinu að rannsaka sjálfa sig.

  4. Elín Says:

    Greinin var lesin. Að þingið skipi nefnd er ekki málið. Því tengt: Hefur einhver eftirlit með því sem skilanefndirnar eru að sýsla þessa dagana?

  5. Brynja Says:

    Fleiri nefndir, fyrir mig sem er ein af þeim sem forsætisráðherra kallar almenning í ræðu sinni og riti þá er ég alveg búin að fá nóg af því að fólk sé að kalla yfir okkur fleiri nefndir hvort sem þær eru skipaðar innlendum eða erlendum aðilum. Rannsóknir og það að draga lærdóm af því sem gerðist er mér heldur ekki ofarlega í huga þessa stundina, geymum það aðeins, fáum heldur að vita hvað ætlar stjórnin að gera annað en að tala í fallegri orðræðu sem kitlar þjóðernistilfinningu okkar, ég heyri voða lítið um hvernig á að leysa málin. Stjórnmálamaður eftir stjórnmálamann kemur fram í fjölmiðlum og talar um ruggandi báta, veltandi skip, holskeifluveður og hamfarir. Menn og konur sem að eigin sögn leggja dag við nótt að slökkva elda sem þau virðast ekki gera sér grein fyrir því að þau bera sjálf ábyrgð á að hafa tendrað…
    Skilanefndir og rannsóknanefndir, innlendir eða erlendir nefndarmenn á ég að treysta því að þar sitji hlutlausir aðilar valdir af fólki sem að mínu mati hefur fyrirgert trausti mínu og svo margra annarra sem flokkast eins og ég sem almenningur í landinu.
    Mér finnst heldur erfitt að hlusta á og trúa stjórnmálamönnum þessa dagana, stjórnarliðar tala um að þeir séu uppteknir við það að bjarga því sem bjargað verður og þar séu heimilin og fyrirtækin í landinu efst á blaði, stjórnarandstaðan talar um að stjórnin sé að fara villu vegar í ákvörðunartöku og aðgerðum eða á tíðum aðgerðarleysi sínu, að þeir séu sveltir upplýsingum frá stjórninni…
    Ég hefði viljað sjá stjórnina og stjórnarandstöðuna vinna saman að því að laga það sem lagað verður.
    Hvað sem rannsóknanefnd líður hvort sem hún verður sett af stað nú eða í vor þá er ég viss um að árið 2008 eða 2009 verður ekki árið sem við sjáum þau þáttaskil í íslenskri pólitík að stjórnmálamenn verði látnir sæta ábyrgð gjörða sinna…
    Ég gerði mér ekki grein fyrir því að mér lægi svona mikið á hjarta ;) en langar að ljúka ræðu minni með því að segja að ef einhver hefði sagt mér í sumar að nú í október væri það fín staða að vera eignarlaus öryrki hefði ég haldið að sá hinn sami væri að hæðast að mér en nú er öldin önnur þar sem ég er ekki að fara að missa eigur mínar sem ég á ekki og ég er ekki að fara að missa tekjurnar mínar þar sem ég er ekki á vinnumarkaðinum… öfugsnúið en ég er ein af þeim heppnu…

  6. Anna Says:

    Er fólk ekkert að taka eftir því að það er svo búið að jarða okkur og það er verið að moka yfir okkur núna smám saman .
    Afhverju ert ekki gert einhvað í gjaldþrotalögunum !
    Afhverju eru fjármögnunarfyrirtækin ekki skoðuð og gert þeim að semja við fólk heldur en að koma fólki í meiri skulda súpu !
    Hvað er ríkisstjórnin að gera !
    T.d veit um dæmi þess að fólk fór í landsbankan og bað um frystingu og var ekki í vanskilum með íbúðarlánasjóða eða íbúðarlánið sitt en núna mánuði seinna koma greiðsluseðlarnir og fólkið getur ekki borgað að og það hringir til að ítreka hvort að fyrstingin séi komin í gangið og þá er svarað að það séi ekki hægt að gera það því að það séi komið í vanskil 1 .mánuð !
    Hvaða úrlausnir eru í boði ! Ja allavegana þær sem eru í boði eru ekkert að virka því að þær miðast alla við að fólk verði að vera í skilum og ekki að skulda einu sinni 1 mánuð .Hvernig ætla stjórnvöld að sporna við þessu !
    Það er ekkert um svör ,það er ekkert að gerast og ég veit ekki hvað fólk er að gera á alþingi annað en að fá launin sín bara .
    Nuna er tími vinstri græna og framsóknar að taka saman höndum og steypa þessari ömurlegu ríkistjórn af og fara að reyna að byggja upp og bæta.
    Það er skrýtið að bankarnir sem að fólkið í landinu á eða ríkið réttara sagt hefur ekki mikið traust .
    Fólkið treystir engum þar enda stofnanir og fólk innan þess sem hefur farið illa með fólkið í landinu og logið og svikið okkur almugan .
    Það þarf að skipta um alla í brúnni og útibústtjóra og fleiri sem eru vinir vina sinna og tóku mikinn þátt í siðspillingunni með útrásar víkingunum .,

Leave a Reply