Af prjónaskap og brimskafli

Mér til mikillar gleði vitnuðu einhverjir fjölmiðlar í líkingu mína við prjónaskap í umræðum um efnahagsmál í gær. Hingað til hefur myndmál úr sjómennsku verið nánast allsráðandi í umræðum um efnahagsástandið og „brimskaflinn“ komið þar alloft við sögu. Ég leyfi mér hins vegar að birta upphaf ræðu minnar hér til að minna á að Íslendingar eiga fleiri verkhefðir sem leita má til:

Á mér brenna eins og hverjum öðrum Íslendingi margar spurningar við þær aðstæður sem nú eru uppi. Sú fyrsta snýr að hugmyndafræði, hugmyndafræðinni sem átti sinn þátt í því að fjármálakerfið raknaði upp eins og lausprjónuð lopapeysa og liggur nú eins og lúinn garnflóki. Við gætum rætt hvaða hugmyndafræði við ætlum að hafa þegar við fitjum upp á nýtt. Sjálf er ég ekki í neinum vafa um það. Nú er tími fyrir félagshyggju og jöfnuð, tími fyrir sjálfbæran hugsunarhátt á öllum sviðum samfélagsins. Ég átta mig hins vegar ekki á því, herra forseti, hvert ríkisstjórnin stefnir í sínum hugmyndafræðilega prjónaskap.

One Response to “Af prjónaskap og brimskafli”

  1. Berglind Says:

    Ja, það er spurning hvort það verður einhvers konar kaðlaprjón.

Leave a Reply