Forval 7. mars

mars 4th, 2009

Ég minni á að Vinstri-græn í Reykjavík halda forval sitt fyrir alþingiskosningarnar á laugardaginn kemur, 7. mars. Hægt er að skrá sig í Vg á heimasíðu flokksins, www.vg.is, allt fram á föstudaginn 6. mars. Hvet alla áhugasama til að skrá sig og taka þátt en það er gaman að segja frá því að ég sækist eftir fyrsta sætinu í þessu forvali…

Meira...

Börnum slátrað

janúar 9th, 2009

Þessi grein birtist í Fréttablaðinu: Okkur berast nú á hverjum degi fréttir frá Gasaborg. Þar hafa Ísraelsmenn ráðist inn og drepa daglega óbreytta borgara, konur og börn. Þeir reyna að halda fjölmiðlamönnum sem mest frá svæðinu því eðlilega vilja þeir ekki að heimsbyggðin sjái grimmdarverkin. Þeir þverbrjóta alla alþjóðlega samninga sem snúast um að hlífa óbreyttum borgurum í stríði, skólar eru sprengdir upp, starfsmenn alþjóðlegra hjálparsamtaka eru drepnir. Óbreyttum borgurum, þ.á m. börnum, er smalað inn í hús sem eru svo sprengd í loft upp.

Meira...

Nýtt fyrirkomulag námslána

desember 15th, 2008

Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í gær: Róttækra breytinga er þörf á íslenska námslánafyrirkomulaginu. Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur geysilega mikilvægu hlutverki að gegna til þess að gera sem flestum kleift að afla sér framhaldsmenntunar. Borðleggjandi er að líta til næstu nágrannalanda okkar sem náð hafa miklum árangri í menntun og vísindum og taka lána- og styrkjakerfi þeirra sér til fyrirmyndar. Í frumvarpi og þingsályktunartillögu okkar Vinstri-grænna er stigið fyrsta skrefið að því að gera námslánakerfið öflugra og nútímalegra þannig að námsmenn festist ekki í yfirdráttargildru bankanna en sjóðurinn gegni sínu hlutverki sem félagslegur sjóður sem styrkir menntakerfið í landinu.

Meira...

Vek athygli lesenda á Múrbrotum

nóvember 10th, 2008

http://www.ormstunga.is/islenska/titlar/ummurbrot.htm

Meira...

Hvenær er tímabært?

nóvember 10th, 2008

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa tekið undir þau sjónarmið að mikilvægt sé að ráðist verði í óháða rannsókn á bankahruninu þegar það sé tímabært. En hvenær er tímabært?

Mitt svar við því er einfalt. Það er tímabært að nú strax verði þingið látið skipa rannsóknanefnd færustu manna sem njóti aðstoðar erlendra sérfræðinga.

Meira...

Orð kvöldsins

október 27th, 2008

„Á ekki fólk að fara með reikningana sína út í tunnu og halda svo blaðamannafund?“ Einhvern veginn svona orðaði Einar Már Guðmundsson það á merkilegum fundi í Iðnó í kvöld. Vonandi að krafturinn þar nýtist í að breyta Íslandi til hins betra.

Meira...

Sjálfbær jöfnuður

október 27th, 2008

Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu á laugardaginn: Það er skrýtið að vera Íslendingur þessa dagana. Í ágúst vorum við talin sjötta ríkasta þjóð í heimi. Þegar þetta er skrifað horfum við fram á að íslenska ríkið verði hugsanlega að taka 500 milljarða lán til að greiða fyrir bankaævintýri Landsbankans í Bretlandi. Og aðra 500 milljarða til að koma gjaldeyrisviðskiptum í gang. 1000 milljarðar fyrir okkur að borga með vöxtum og vaxtavöxtum. Og ekki aðeins okkur heldur börnin okkar og barnabörnin sem eru rétt að byrja lífið og tilveruna og við viljum öll að geti átt bjarta framtíð.

Meira...

Andvökur II

október 27th, 2008

Eftirfarandi pistill birtist í helgarblaði Viðskiptablaðsins nú um helgina: Líklega hefði fáum jafnöldrum mínum dottið í hug í menntaskóla að við ættum eftir að liggja andvaka nótt eftir nótt af áhyggjum af efnahagsástandinu, rétt rúmlega þrítug. Þvílík fásinna hefði maður hugsað. Líklega óraði engan fyrir því árið 1996 hvernig íslenskt samfélag ætti eftir að þróast á næstu tólf árum.

Meira...

Af prjónaskap og brimskafli

október 16th, 2008

Mér til mikillar gleði vitnuðu einhverjir fjölmiðlar í líkingu mína við prjónaskap í umræðum um efnahagsmál í gær. Hingað til hefur myndmál úr sjómennsku verið nánast allsráðandi í umræðum um efnahagsástandið og „brimskaflinn“ komið þar alloft við sögu. Ég leyfi mér hins vegar að birta upphaf ræðu minnar hér til að minna á að Íslendingar eiga fleiri verkhefðir sem leita má til:

Á mér brenna eins og hverjum öðrum Íslendingi margar spurningar við þær aðstæður sem nú eru uppi. Sú fyrsta snýr að hugmyndafræði, hugmyndafræðinni sem átti sinn þátt í því að fjármálakerfið raknaði upp eins og lausprjónuð lopapeysa og liggur nú eins og lúinn garnflóki. Við gætum rætt hvaða hugmyndafræði við ætlum að hafa þegar við fitjum upp á nýtt. Sjálf er ég ekki í neinum vafa um það. Nú er tími fyrir félagshyggju og jöfnuð, tími fyrir sjálfbæran hugsunarhátt á öllum sviðum samfélagsins. Ég átta mig hins vegar ekki á því, herra forseti, hvert ríkisstjórnin stefnir í sínum hugmyndafræðilega prjónaskap.

Meira...

Jöfnuður er svarið

október 16th, 2008

Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun: Eftir erfiðar vikur á haustdögum horfa Íslendingar nú fram á miklar efnahagshremmingar. Bankar og fjármálastofnanir hafa hrunið með erfiðum afleiðingum fyrir almenning og atvinnulíf. Atburðir síðustu vikna eru svo umfangsmiklir að erfitt er að ná utan um þá í einni lítilli grein og það verður ekki reynt hér. Hins vegar er nauðsynlegt að halda nokkrum atriðum til haga um það sem á undan er gengið.
Kreppan þurfti ekki að koma stjórnvöldum eins mikið á óvart og þau hafa viljað vera láta. Frá árinu 2004 höfum við Vinstri-græn lýst yfir áhyggjum af gríðarlegri skuldsetningu atvinnulífs og einstaklinga, þenslupólitík og litlum þjóðhagslegum sparnaði. Heimatilbúinn vandi hefur gert það að verkum að það veitist okkur mun erfiðara en ella að mæta ytri aðstæðum. Þess vegna hefur Ísland núna sérstöðu þó að kreppan sé alþjóðleg.

Meira...